Enn einn mánudagurinn!!

Jæja enn og aftur er kominn mánudagurGetLost Ótrúlegt hvað þessar helgar eru alltaf fljótar að líða.

Helgin var hin notarlegasta....Svaf til hálf tólf á laugardaginn og tók svo vel á því í ræktinniTounge  Síðan var tekið vel á því um kvöldið. Leifur hennar Stínu var að fagna 30 afmælinu sínu og sló upp heljarinnar veislu, með singstar, trúbador og öllu tilheyrandi....jeminn ég hef ekki farið í svona skemmtilegt afmæli lengi!! Þvílíkt stuð og ég fór ekki einu sinni í bæinn þá er sko mikið sagt!!

Sunnudagurinn 17 júni var ansi rólegur og fínn, fór með gullið mitt á víkingahátíðina í Hafnarfirði....ég var nú frekar fegin að hann skyldi taka þetta framyfir að fara í miðbæ Reykjarvíkur.

Síðan var ferðinni heitið í bústað foreldranna þar sem beið okkar þessi dýrindis máltíð....nammi namm grillaður kjúlli með öllu til heyrandi, ég er sko ennþá á meltunni....tók reyndar vel á því í ræktinni í morgun í staðinn:)

Síðan var hápunktur helgarinnar í gærkveldi þegar Ísland vann Serbíu....jeminn ég var sko að fara á taugum við þetta allt saman....strákarnir okkar stóðu sig eins og hetjur, ég hefði sko alveg verið til í að vera í höllinni.....þvílík stemming sem var þarna!!! ÁFRAM ÍSLANDSmile

jæja best að fara að gera eitthvað af viti....kisskiss


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

mongoqueen

Höfundur

mongoqueen
mongoqueen
28 ára Reykvíkingur.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 463

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband